12/02/2020
Komið þið sæl
Vilborg ætlar að pússla 9 - 18 mánaða námskeiðinu þanig að sem flestir komist að og verður í sambandi við ykkur þegar nær dregur.
Ég hins vegar ætla að fara af stað með grunnnámskeið fyrir
3 - 8 mánaða í næstu viku, þriðjudaginn 18. febrúar.
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir fjöldanum en ég get allavega boðið upp á tvo hópa (8 í hvorum) ef að fjöldinn verður það mikill. Ef að þetta verða tveir hópar þá eru þetta tímasetningarnar: 11:00 - 11:40 og 11:50 - 12:30. Ef það verður bara einn hópur þá myndi tíminn vera klukkan 11:50. Þumalputtareglan er að börn séu búin að ná 3 mánuðum og 4 kg.
Mig langar að biðja ykkur um að skrá ykkur í eftirfarandi skjal og taka fram ykkar ósk um tíma þ.e. fyrri tími/seinni tími eða skiptir ekki máli. Ég mun reyna að verða við ósk ykkar eftir bestu getu. Námskeiðið verður kennt í 8 vikur, alltaf í hádeginu á þriðjudögum og kostar 12.000kr.
Bestu kveðjur
Salóme Rut
P.s. sendi út nánari upplýsingar um hvað þarf að hafa meðferðis og þess háttar þegar nær dregur námskeiði.
Sheet1 Nafn barns,Fæðingardagur barns,Nafn foreldris ,Kennitala foreldris,Netfang,Símanúmer,Fyrri tími/seinni tími /skiptir ekki máli 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16