Hundahlaupið

Hundahlaupið Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Hundahlaupið, Sports Event, Askalind 3, Kópavogur.

Sannkallað hundapartý 🐶🥳
Frábær viðburður þar sem hundar af öllum stærðum og gerðum taka þátt með eigendum sínum á öllum aldri 🐾 👟
5km tímataka ⏱️
2km skemmtiskokk 🎉
Vegleg þátttöku verðlaun fyrir alla 🏅🎁

04/09/2025
🐶🏁Hundahlaupið var haldið í þriðja sinn 27. Ágúst 2025.🎉Stemningin var eins og við viljum hafa hana, algjörlega sturluð ...
01/09/2025

🐶🏁Hundahlaupið var haldið í þriðja sinn 27. Ágúst 2025.
🎉Stemningin var eins og við viljum hafa hana, algjörlega sturluð og nýtt þátttökumet var slegið með 250 skráningum! 👏
🐕🏃‍♀️Hundar af öllum stærðum og gerðum og eigendur þeirra á öllum aldri skemmtu sér frábærlega í Reykjarlundinum fagra 🌳
📸Ljósmyndarar Hundahlaupsins þau
Jón Aðalsteinn og Nína Björns fönguðu stemninguna svona meistaralega og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. 🙏
🏅Við viljum þakka öllum þátttakendum og áhorfendum kærlega fyrir áhuga á hlaupinu og ekki síst fyrir alla prúðu hundana, þið eruð öll sigurvegarar. 🏆
❤️ Einnig þökkum við styrktaraðilum Hundahlaupsins, Royal Canin og Non-stop dogwear fyrir þeirra aðkomu, án traustra styrktaraðila væri þetta ekki mögulegt.
⭐️Njótið myndaveislunnar, taggið ykkur og vini, kommentið og deilið myndum af vild, saman sköpuðum við einstakan viðburð sem á skilið birtingu sem víðast 😊
Hlökkum til að sjá ykkur í Hundahlaupinu 2026.🎉

Skemmtilegur hlaðvarpsþáttur þar sem þær stöllur Kolbrún Arna Sigurðardóttir hjá Óstöðvandi og Theodóra Róbertsdóttir hj...
30/08/2025

Skemmtilegur hlaðvarpsþáttur þar sem þær stöllur Kolbrún Arna Sigurðardóttir hjá Óstöðvandi og Theodóra Róbertsdóttir hjá Dýrheimum gera upp Hundahlaupið 2025 ,ræða Canicross, börn og hunda og fleira áhugavert 🐶
Vonum að þið hafið gagn og gaman af 🎉

HUNDAHLAUPIÐ 2025 heppnaðist frábærlega! Hundahlaupið 2025 fór fram á túninu við Reykjalund í Mosfellsbæ um helgina og tókst einstaklega vel í fallegu haustveðri. Alls tóku um 250 þátttakendur þátt í hlaupinu ásamt hundum sínum, sem voru af öllum stærðum og gerðum. Af þeim...

Takk Takk takk 🎉 Hundahlaupið 2025 taldi 250 þátttakendur á öllum aldri ! Stemningin var sturluð, gleðin var mögnuð og þ...
28/08/2025

Takk Takk takk 🎉
Hundahlaupið 2025 taldi 250 þátttakendur á öllum aldri !
Stemningin var sturluð, gleðin var mögnuð og þið voruð öll sem eitt algjörlega frábær bæði hundar og menn 🤩
Við erum þakklát og meir yfir viðtökunum, hrósunum og liðsheildinni sem flæddi á milli þátttakenda, mótshaldara og öllum sem komu að Hundahlaupinu í ár 🥰
Saman sýndum enn og aftur hversu flottir og metnaðarfullir Íslenskir hunda eigendur eru 👏
Sérstakar þakkir fá Styrktaraðilar Hundahlaupsins Royal Canin & Non-stop dogwear, án þeirra væri þetta ekki hægt ♥️
Ást & gleði á ykkur öll
🐕🏃‍♀️Keep running 🎉
Hundahlaupið 2025

Þau sem eiga eftir að sækja númerin sín geta sótt þau á upplýsingabás í Non-stop dogwear tjaldinu á mótsstað við Reykjar...
27/08/2025

Þau sem eiga eftir að sækja númerin sín geta sótt þau á upplýsingabás í Non-stop dogwear tjaldinu á mótsstað við Reykjarlund í Mosó
kl 16:00- 17:30.
Hlökkum til að sjá ykkur 😃
Góða skemmtun 🎉

26/08/2025

🏁Ekki gleyma að sækja hlaupagögnin þín í dag!
🎯 Dýrheimar, Víkurhvarfi 5 Kópavogi til kl 16:00
🎁 Þín bíða vegleg þátttöku verðlaun
🐶 Hundar eru velkomnir með í salinn
🎉 Styrktaraðilar Hundahlaupsins Royal Canin og Non-stop dogwear bjóða 15 % afslátt af öllum vörum á afhendingunni í dag

Kæri þátttakandi Hundahlaupsins 2025Nú styttist í fjörið ! Hér eru nokkur praktísk atriði varðandi viðburðinn. Afhending...
25/08/2025

Kæri þátttakandi Hundahlaupsins 2025

Nú styttist í fjörið !

Hér eru nokkur praktísk atriði varðandi viðburðinn.

Afhending hlaupagagna og þátttökuverðlauna
Rásnúmer verða afhent þriðjudaginn 26. Ágúst milli kl. 12:00 - 16:00 . Afhending fer fram hjá Dýrheimum, Royal Canin á Íslandi í Víkurhvarfi 5, 203 Kópavogi. Hundar eru velkomnir í salinn, en þar mun Non-stop dogwear vera með sölubás þar sem þátttakendum gefst kostur á að versla búnað á afslætti.
í þátttökuverðlauna pokanum þínum muntu m.a. finna glæsilegan stuttermabol frá Royal Canin, við hvetjum alla þátttakendur til þess að klæðast bolnum á meðan hlaupi stendur því saman myndum við flotta heild, sem er einmitt eitt helsta markmið Hundahlaupsins þ.e.a.s. efla tengsl hundaeiganda og skapa sýnileika.

Þeir sem skrá sig eftir afhendingu gagna á þriðjudegi, geta sótt númerin sín í upplýsingabás Non-stop dogwear á keppnisstað milli kl 16:00 - 17:30

Rástímar og Dagskrá
Mótsstaður er á stóra túninu fyrir framan Reykjarlund, á svæðinu finnur þú sölubás Non-stop dogwear þar sem þú getur verslað búnað á afslætti, hvatningarstöð Royal canin þar sem þú finnur vatn og orkubita fyrir hundinn. Aðgangur að salerni er í húsi nr 7 við túnið.

Svæðið opnar kl 16:00 , Sölubás Non-stop dogwear er opinn frá 16:00 - 17:30
Sameiginlegri upphitun kl 17.45, að henni lokinni verður ræst af stað í 2 km skemmtiskokk.
Áætlaður rástími fyrir 5 km tímatöku er á milli 18:30- 18:45.
Að hlaupi loknu fer fram verðlaunaafhending fyrir bestu þrjá tíma í kvenna og karlaflokki í 5 km tímatöku.

Ekki gleyma að skella þér í myndatöku við „sigur vegginn“ eftir hlaup!

Meðfylgjandi er kort af svæðinu og hlaupaleiðum ( blá – 2 km og rauð – 5 km) rásmark er á grasflötinni fyrir framan Reykjalund og hlaupaleiðir eru vel merktar.

Bílastæði eru fyrir framan og aftan Reykjalund.

Öryggi keppenda
Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð og ber hver og einn ábyrgð á sínum hundi.

Meðfygljandi eru nokkrir punktar sem við viljum skerpa á.

Upplýsingaflæði
við bendum á fb viðburði Hundahlaupsins 2025

https://facebook.com/events/s/hundahlaupi%C3%B0-2025/1925720974948154/

Deildu gleðinni
Við hvetjum þig til þess að tagga styrktaraðila Hundahlaupsins 2024 á samfélagsmiðlum svo við getum deilt ykkar upplifun með öðrum






Góða skemmtun

Karri og Kolla sögðu frá Hundahlaupinu í Útvarpinu í dag 🎉 Veist þú hvernig Hundahlaupið byrjaði ? Hlustaðu á viðtalið m...
22/08/2025

Karri og Kolla sögðu frá Hundahlaupinu í Útvarpinu í dag 🎉
Veist þú hvernig Hundahlaupið byrjaði ?
Hlustaðu á viðtalið með því að smella á hlekkin hér að neðan 👇

🤩Þér og hunda unnendum er boðið á opna brautar kynningu fyrir Hundahlaupið 🎉📅 Sunnudaginn 24. Ágúst kl 10:00.  🎯 Stóra t...
22/08/2025

🤩Þér og hunda unnendum er boðið á opna brautar kynningu fyrir Hundahlaupið 🎉
📅 Sunnudaginn 24. Ágúst kl 10:00.
🎯 Stóra túnið fyrir framan Reykjarlund í Mosó
🐾 Við ætlum að ganga - skokka - hlaupa
🏁 Stikaðar leiðir, 2km eða 5km - þú ræður
🐶 Skemmtileg útivist með hundinum í fallegu umhverfi
👏 Allir velkomnir

Karri kíkti í útvarpið í morgun og sagði frá Hundahlaupinu 🎉 🐶 nú eru bara 5 dagar í skemmtilegasta hlaup ársins 👏
22/08/2025

Karri kíkti í útvarpið í morgun og sagði frá Hundahlaupinu 🎉
🐶 nú eru bara 5 dagar í skemmtilegasta hlaup ársins 👏

Kolbrún Arna, hundasjúkraþjálfari og hundurinn Karri kíktu til okkar og ræddu Hundahlaupið.

Það eru frábærar fréttir að lýðheilsu tengdir viðburðir eigi góðu gengi að fagna 👏 Ætlum við að setja skráningarmet í Hu...
20/08/2025

Það eru frábærar fréttir að lýðheilsu tengdir viðburðir eigi góðu gengi að fagna 👏
Ætlum við að setja skráningarmet í Hundahlaupið 2025 ?
Fyrsta Hundahlaupið var haldið árið 2022 og töluð þátttakendur þá 100. Árið 2024 var Hundahlaupið haldið í annað sinn og þá með tvöföldum þátttakenda fjölda eða 200 talsins !
Það verður spennandi að sjá hversu margir skrá sig í ár 😃
Allar upplýsingar eru á https://www.hundahlaup.is/
Skráning á https://netskraning.is/hundahlaupid/skradir.php

Nýtt skráningarmet 🙌🙌🙌

Skráningar í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2025 eru komnar í 15.553 og því erum við að tala um það að það sé komið nýtt skráningarmet 👏

Fyrra met var frá 2014 þegar 15.552 skráðu sig í hlaupið!

Það er ennþá hægt að taka þátt í gleðinni þann 23. ágúst hér 👉 https://www.corsa.is/is/reykjavikur-marathon

---------------------------------

New registration record 🙌🙌🙌

Registrations for the 2025 Íslandsbanki Reykjavík Marathon are at 15.553 which is new registration record 👏

The last record was from 2014 when 15.552 registered for the race!

You can still join the fun 👉 https://www.rmi.is/en

Address

Askalind 3
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hundahlaupið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category