09/05/2026
Íslandsmót unglinga í kata fór fram í dag, 9. Maí í Íþróttahúsinu í Austurbergi. 11 lið sendu frá sér keppendur og voru 100 skráningar þannig að mótið var óvenju stórt í ár. 20 karateblikar mættu til leiks með liðsstjórunum Villa, Samma og Sissó. Á mótinu dæmdi Helgi Jóhannesson og Gaukur Garðarsson og Auður Ester Guðlaugsdóttir voru í mótsstjórn. Ekki má gleyma Þórdísi Jónu lukkutrölli sem átti sinn þátt í velgengni dagsins.
Karateblikarnir komu heim með 23 verðlaun af mótinu. Aron Páll Gauksson er Íslandsmeistari í kata 15 ára pilta og vann einnig til brons verðlauna í liðakeppni 16 og 17 ára pilta. Niðurstaða dagsins 1 gull, 2 silfur og 17 brons og Karatedeild Breiðabliks var í 2-3 sæti í stigakeppni mótsins. Frábær dagur hjá okkur.
• Aron Páll Gauksson, Íslandsmeistari í kata 15 ára pita og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Brynja Mjöll Gautadóttir, silfur í kata 16 og 17 ára stúlkna og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Linda Pálmadóttir, silfur í kata 14 ára stúlkna og brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Kristín Mila Busgeeth, brons í kata 16 og 17 ára stúlkna og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Arna Kristín Arnarsdóttir, brons i kata 16 og 17 ára stúlkna og brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Svava Eggertsdóttir, brons í kata 15 ára stúlkna og brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Krummi Arnarsson, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Ýmir Óli Rósmundsson, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Óðinn Hersir Heisason, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Óskar Rós Raffnsöe, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Nicolas Aron Róbertsson Kinghorn, brons í liðakeppni 14 og 15 ára.
• Anna Lilja Bjarnadóttir, brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Viktor Oberlé, brons í liðakeppni 16 og 17 ára.
• Kristín Mila Busgeeth, brons í kata 16 og 17 ára stúlkna.