14/09/2026
✨ Heilun í vatni ✨
Í flæði, hlýju og mýkt vatnsins gefum við okkur rými til að sleppa tökunum og þiggja heilandi snertingu og meðhöndlun. 💧
Vatnið ber líkamann og skapar einstakar aðstæður til djúprar slökunar, þar sem unnið er með mjúka snertingu, flæði og Reiki. Markmiðið er að losa um spennu, draga úr áhrifum streitu og skapa rými fyrir ró, jafnvægi og næringu fyrir líkama og sál. ✨
Aðeins fjögur pláss eru í boði í Heilun í vatni og kostar tíminn 6.000 kr.
Þeir sem óska eftir Heilun í vatni fá afhenta klemmu við sundlaugarbakkann um leið og greitt er fyrir tímann.
💙 Fyrstur kemur – fyrstur fær.
Umsjón:
Pálína Hildur Sigurðardóttir
Jógakennari í vatni • Usui/Holy Fire® III Reiki-meistari • stofnandi Aqua Jóga
Ég býð ykkur hjartanlega velkomin í sundlaug Akurskóla til að upplifa kyrrðina, mýktina og heilandi kraft vatnsins. 🌊✨