FH Handbolti

FH Handbolti FH Handbolti

Treyjudagur!Mættu í uppáhaldstreyjunni þinni á tvíhöfðann á föstudaginn!FH - Grótta2 kvenna kl. 18:00FH - Stjarnan karla...
02/09/2026

Treyjudagur!

Mættu í uppáhaldstreyjunni þinni á tvíhöfðann á föstudaginn!

FH - Grótta2 kvenna kl. 18:00
FH - Stjarnan karla kl. 20:15

Treyjudagurinn er á föstudaginn en þá klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Börn með krabbamein, styrktarfélag stendur að deginum. Félagið styður börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra með fjölbreyttum hætti. Nánari upplýsingar á treyjudagur.is.

Áfram FH 🖤🤍

Guðmundur Levy og Jakob Már til FHGuðmundur Levy Hreiðarsson og Jakob Már Kjartansson hafa gengið til liðs við FH og haf...
02/09/2026

Guðmundur Levy og Jakob Már til FH

Guðmundur Levy Hreiðarsson og Jakob Már Kjartansson hafa gengið til liðs við FH og hafa æft með liðinu á undirbúningstímabilinu. Þeir eru fæddir árið 2010 og voru báðir í U16 ára landsliði Íslands í sumar. Guðmundur Levy kemur frá Þór en Jakob Már frá HK.

Velkomnir í Kaplakrika, strákar!

Tvíhöfði á föstudaginn!Kl. 18:00 | FH - Grótta2 - Grill 66 deild kvenna Kl. 20:15 | FH - Stjarnan - Olísdeild karlaMiðak...
31/08/2026

Tvíhöfði á föstudaginn!

Kl. 18:00 | FH - Grótta2 - Grill 66 deild kvenna
Kl. 20:15 | FH - Stjarnan - Olísdeild karla

Miðakaup á Stubb - miðinn gildir á báða leiki.
https://stubb.is/events/n54glb

Mætum snemma í mat og drykk.
Við hlökkum til að sjá ykkur á pöllunum!

Við erum FH 🖤🤍

FH stelpurnar unnu Fjölni í gær í síðasta æfingaleiknum fyrir mót 29-22. Mjög góð frammistaða og öruggur sigur!Mörk FH s...
28/08/2026

FH stelpurnar unnu Fjölni í gær í síðasta æfingaleiknum fyrir mót 29-22. Mjög góð frammistaða og öruggur sigur!

Mörk FH skoruðu:
Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 9, Sylvía Blöndal 6, Telma Medos 4, Elísa Björt Ágústsdóttir 4, Ólafía Þóra Klein 3, Eva Aðalsteinsdóttir 2, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 1.

Varin skot:
Szonja Szöke 11
Sigrún Ásta Möller 4

Mfl. kvk | FH vann VíkingStelpurnar okkar sigruðu Olísdeildarlið Víkings 28-34 í æfingaleik í gærkvöldi en staðan í hálf...
26/08/2026

Mfl. kvk | FH vann Víking

Stelpurnar okkar sigruðu Olísdeildarlið Víkings 28-34 í æfingaleik í gærkvöldi en staðan í hálfleik var 14-23 stelpunum okkar í hag. Virkilega flottur leikur sem gefur góð fyrirheit um framhaldið.

Mörk FH skoruðu:
Sylvía Blöndal 11, Elísa Björt Ágústsdóttir 6, Eva Aðalsteinsdóttir 6, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 3, Dagný Þorgilsdóttir 2, Ólafía Þóra Klein 2, Telma Medos 2, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 1 og Hafdís Hera Arnþórsdóttir 1.

Szonja Szöke og Sigrún Ásta Möller vörðu samtals 10 skot.

Við erum FH 🖤🤍

Meistari Jói Long mætti með myndavélina á leik FH og Afturelding.Síðasti leikur Hafnarfjarðarmótsins er á laugardaginn k...
19/08/2026

Meistari Jói Long mætti með myndavélina á leik FH og Afturelding.

Síðasti leikur Hafnarfjarðarmótsins er á laugardaginn kl. 13:00 gegn Haukum.

Sigur á Aftureldingu 💪FH vann Aftureldingu í kvöld 40-35 í öðrum leik liðisins á Hafnarfjarðarmótinu sem fram fer á Ásvö...
19/08/2026

Sigur á Aftureldingu 💪

FH vann Aftureldingu í kvöld 40-35 í öðrum leik liðisins á Hafnarfjarðarmótinu sem fram fer á Ásvöllum. Staðan í hálfleik var 25-18. Mikill hraði var í leiknum og skoraði FH m.a. 11 mörk úr hraðaupphlaupum (fyrstu eða annarri bylgju) í fyrri hálfleik. Rúllað var vel á liðinu og skoruðu allir útileikmennirnir í leiknum.

Mörk FH skoruðu:
Jón Bjarni Ólafsson 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Brynjar Narfi Arndal 5, Leonharð Þorgeir Harðarson 4, Ágúst Guðmundsson 3, Eiður Rafn Valsson 3, Ingvar Dagur Gunnarsson 3, Símon Michael Guðjónsson 3, Antoine Óskar Pantano 2, Einar Rafn Eiðsson 2, Gunnar Kári Bragason 1, Jakob Martin Ásgeirsson 1 og Guðmundur Levy Hreiðarsson 1.

Varin skot:
Jón Þórarinn Þorsteinsson 11
Jóhannes Andri Hannesson 2

Við erum FH 🖤🤍

LEIKDAGUR 🤾FH-Afturelding í Hafnarfjarðarmótinu kl. 20:00Leikið á Ásvöllum.Við erum FH 🖤🤍
18/08/2026

LEIKDAGUR 🤾
FH-Afturelding í Hafnarfjarðarmótinu kl. 20:00

Leikið á Ásvöllum.

Við erum FH 🖤🤍

FH vann HK 33-30 í fyrsta leik Hafnarfjarðarmótsins sem hófst á Ásvöllum í morgun.Mörk FH skoruðu:Ómar Darri Sigurgeirss...
15/08/2026

FH vann HK 33-30 í fyrsta leik Hafnarfjarðarmótsins sem hófst á Ásvöllum í morgun.

Mörk FH skoruðu:
Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Eiður Rafn Valsson 4, Ágúst Guðmundsson 4/2, Símon Michael Guðjónsson 4, Jón Bjarni Ólafsson 3, Leonharð Þorgeir Harðarson 3, Brynjar Narfi Arndal 3, Antoine Óskar Pantano 2, Gunnar Kári Bragason 2, Guðmundur Levy Hreiðarsson 1 og Einar Rafn Eiðsson 1/1.

Varin skot:
Jón Þórarinn Þorsteinsson 8
Jóhannes Andri Hannesson 5

Næsti leikur FH á mótinu er nk. þriðjudag gegn Aftureldingu.

Við erum FH 🖤🤍

Meistaraflokkur kvenna kom heim í gær frá Tenerife þar sem stelpurnar okkar voru í æfingaferð. Æft var af krafti við top...
14/08/2026

Meistaraflokkur kvenna kom heim í gær frá Tenerife þar sem stelpurnar okkar voru í æfingaferð. Æft var af krafti við toppaðstæður á Tene og eru stelpurnar nú klárar í lokaundirbúning hér heima fram að fyrsta leik í deild.

Við erum FH 🖤🤍

Address

Kaplakriki
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when FH Handbolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to FH Handbolti:

Shortcuts

Share

Category