Hjólreiðafélagið Bjartur

Hjólreiðafélagið Bjartur Skráning í félagið fer fram á www.bjarturhjol.is Bjartur var formlega stofnaður 19. október 2011 og er fyrsta og eina hjólreiðafélagið í Hafnarfirði.

Allir félagar hafa það sameiginlegt að elska hjólreiðar og eru ekkert að taka sig of alvarlega.

Hjólreiðafélagið Bjartur boðar til aðalfundar þriðjudaginn 10. mars klukkan 20:00. Fundurinn fer fram í sal Sjálfstæðisf...
24/02/2026

Hjólreiðafélagið Bjartur boðar til aðalfundar þriðjudaginn 10. mars klukkan 20:00. Fundurinn fer fram í sal Sjálfstæðisflokksins, Norðurbakka 1.

Dagskrá: Hefðbundin dagskrá aðalfundar.
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
a) Lög félagsins hafa verið uppfærð í takt við viðmið ÍSÍ
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Kosning skoðunarmanna reikninga
8. Önnur mál

Þrír núverandi stjórnarmenn munu ekki gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og því óskum við eftir framboðum.
Þeir sem eru að hætta í stjórn eru Gunnlaugur Sigurðsson, Hreiðar Gíslason og Arnar Þór Ásgrímsson og viljum við færa þeim þakkir fyrir störf sín í þágu félagsins.

Kveðja,
Stjórn Bjarts

12/01/2026

Fyrstu drög mótaskrár fyrir sumarið 2026 frá Mótanefnd HRÍ eru hér komin, með fyrirvara um hugsanlegar breytingar á mótum og tímasetningum. Einnig vantar hér dagskrá CX móta n.k. haust.  

12/01/2026

Hjólavarpið og Hjólreiðasamband Íslands hafa nú opnað fyrir kosningu vegna Gullhjálmsins 2025 og er öllum frjálst að kjósa. Innsendar tilnefningar voru fjölmargar, en þessi þrjú sem hér eru tilnefnd fengu lang flestar tilnefningar í ár.

Frestur til að kjósa rennur út föstudaginn 9. janúar.

Sjá frekari upplýsingar um tilnefningar og hvar hægt er að kjósa á heimasíðu HRÍ -> www.hri.is

Viltu koma út að hjóla?
28/05/2025

Viltu koma út að hjóla?

The Traka 200 er og verður viðburður sem við frá Bjarti munum aldrei gleyma. Girona er stórkostleg hjólaborg á Spáni og ...
13/05/2025

The Traka 200 er og verður viðburður sem við frá Bjarti munum aldrei gleyma. Girona er stórkostleg hjólaborg á Spáni og landslagið býður upp á allt það besta fyrir gravelhjólreiðar. Kaffihúsin og veitingarstaðirnir eru að manni finnst hannaðir með hjólreiðar í huga. Allt í kringum viðburðinn var til fyrirmyndar og hópurinn stóð sig afburða vel. Leiðin sem var hjóluð þetta árið var mjög krefjandi og því þarf að undirbúa svona viðburð mjög vel. Okkur þykir mjög líklegt að Bjartur fari aftur á næsta ári en með skipulögðum æfingum í sumar og næsta vetur er hægt að setja sér háleit markmið. Traka 2026 er mögulega markmið sem þú ættir að setja þér!

Bjartur er kominn á TikTok 💪😎
13/05/2025

Bjartur er kominn á TikTok 💪😎

0 Followers, 0 Following, 0 Likes - Watch awesome short videos created by Hjólreiðafélagið Bjartur

Götuhjólanámskeið ☀️Langar þig að hjóla í góðum félagsskap og komast í gott form í leiðinni?Farið verður yfir allt það h...
12/05/2025

Götuhjólanámskeið ☀️

Langar þig að hjóla í góðum félagsskap og komast í gott form í leiðinni?

Farið verður yfir allt það helsta sem tengist götuhjólreiðum.

Námskeiðið hefst 19.maí og verður kennt á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 18:00 frá Pallett.

😎👌 bjarturhjol.is

Bjartir menn á Tenerife
17/02/2025

Bjartir menn á Tenerife

Innihjólaæfingar eru byrjaðarIngvar Ómarsson, margfaldur íslands- og bikarmeistari verður yfirþjálfari hjá okkur í vetur...
07/01/2025

Innihjólaæfingar eru byrjaðar

Ingvar Ómarsson, margfaldur íslands- og bikarmeistari verður yfirþjálfari hjá okkur í vetur. Komdu og hjólaðu með okkur í einum besta hjólasal landsins í World Class við Tjarnarvelli.

Æfingar fara fram mánudaga og miðvikudaga kl. 19:00 og laugardaga kl. 11:15

Skráning á www.bjarturhjol.is

Address

Hafnarfjörður

Opening Hours

Monday 19:00 - 20:30
Tuesday 19:00 - 21:00
Wednesday 19:00 - 20:30
Thursday 19:00 - 21:00
Saturday 09:00 - 12:00
Sunday 09:00 - 12:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hjólreiðafélagið Bjartur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hjólreiðafélagið Bjartur:

Share