17/06/2026
Jæja gott fólk af Sæúlfinum er það að frétta að við komum til hafnar í Stornoway um kl 10 miðvikudaginn 11. júní eftir ljófa siglingu frá Hafnarfirði. Fyrstu tveir dagarnir voru erfiðastir. Það var mótvindur út úr Faxaflóanum og fyrir Reykjanesið. Við sigldum þann kafla nánast alveg á vél því okkur lág á að komast frá landi. Það var svo kruss alveg að Surtsey. Eftir það fundum við rétta vindinn og sigldum 40 gráður niður í 120 gráðu lens næstu þrjá dagana til Lewis. Við lögðumst svo við ankeri í Loch a Tuath til að hvíla okkur áður en við sigldum síðasta spottan inn til Stornoway.
Áhöfnin yfirgaf mig svo seinna um daginn. Stelpurnar tóku ferjuna frá Stornoway til Ullapool og svo rútu áfram til Edinborgar. Ég slakaði á í Stornoway fram á laugardag og hélt þá suður með Lewis 17 sjómílur og stoppaði í anekrislegu sem heitir Loch Bhrollum þar sem myndbandið er tekið. Siglingin var lens bara á framseglinu í 20 hnúta vind. Ég skellti í Taco og eftirmaturinn var súkkulaði húðuð jarðaber af því þau kosta svo lítið hér í útlöndum.
Þegar ég ætlaði svo að taka stutta siglingu yfir til Ski daginn eftir eða sunnudaginn 14 júní þá kom villa á rafkerfið á vélinni. Þar sem ég var búinn að taka upp ankerið þá lagið ég af stað út úr Loch Bhrollum. Bilanagreiningin leiddi í ljós að spennu jafnarinn í gamla altinatornum var búinn að fá nóg eftir 18 ára þjónustu. Þá var nú gott að vera með tvo altinatora á vélinni. Ég ákvað samt að sigla langan legg alla leið að Mull sundinu. Ég skilað mér í ankeri í fallega vík hjá Carna eyju 56°39,494'N 005°53,937'W eftir 20 tíma siglingu. Þar hef ég notið fallegrar náttúru og slakað á. En á morgun 17. júní ætla ég að sigla um Mull sundið til Oban þar sem ég mun halda til og vinna í þeim verkum sem ekki náðist að klára fyrir brotför frá Hafnarfiði.
Gleðilegan 17. júní.