16/03/2026
FFH - Páska Texas (modified best throw)
Skráning á UDisc:
https://udisc.com/events/ffh-paska-texas-modified-first-throw-SoDJeS/about
FFH bíður til Texas móts á skírdag 2.apríl. klukkan 12:00 á Vífilsstöðum.
Spilað verður einn hring, samtals 18 körfur, eftir breyttum tvímennings reglum.
Báðir spilarar kasta frá teig en liðið má ekki nota teigskast frá sama liðsmanni í meira en tvær holur í röð.
Dæmi: Jón og Páll spila saman í liði. Þeir nota upphafskast frá Jóni á holu 1 og upphafs kast frá Páli á holu 2 og 3. Það þýðir að þeir verða að nota upphafskast Jóns á holu 4.
Reglur þessar eiga EINGÖNGU við teigsköst, önnur köst fylgja hefðbundum Texas reglum.
Braut 5 kvöð ( mandó ), fara verður hægra megin við stöngina.
Braut 1 / 3 / 18 Möl er toffæra ( hazzard ).
Braut 6 til 13, allt utan girðingar er OB.
Braut 13 spilast sem eyja, allt utan eyju er toffæra ( hazzard ), allt utan girðingar er OB.
Flokkar: Opinn flokkur, almennur flokkur, kvenna flokkur og paraflokkur.
Verðlaun eru veitt fyrir fyrstu 3 sætin í hverjum flokk.
Í lokin eftir mót þá þjöppum við okkur saman og köstum öll einum disk að 18. körfu. Glæsileg verðlaun fyrir að hitta járn. Ás > keðjur > búr > band > stöng. Ef fleirri en tveir ná bestu útkomu þá verður ctp tiebreaker á sömu holu.
Melding fer fram á UDISC á mótsdegi og stendur til kl 11:00.
Ef melding gleymist áður en mót hefst þá verður liðinu ekki raðað í holl.
Mótsgjald er 2.000 krónur á lið.
1.000 krónu afsláttur fyrir hvern liðsmann sem er félagsaðildar meðlimur í FFH - http://www.ffh.is/skraning/
1.000 krónu afsláttur fyrir hvern liðsmann sem er yngri en 16 ára
Banki: 0537-26-009091
Kennitala: 6507221160
Sýnum tillitssemi og höfum augun opin svo aðrir keppendur séu ekki í hættu.
Ekki kasta ef hætta er á að diskur lendi í gangandi/hjólandi vegfarendum á stígum.
Reykingar, veip , eiturlyf og áfengi bannað á meðan umferð stendur.
Mótstjórar: Hörður Guðmundsson og Siggi Gunn