04/09/2026
Okkur langar að þakka öllum sem komu og aðstoðuðu við Þrjótinn síðustu vikur. Það má þakka fyrir tvennt, annarsvegar hjálpina sem var ómetanleg og hinsvegar að hlæja ekki bara og gera grín að þessari óhóflegu bjartsýni!
Ákveðið var að ef bíllin væri klár kl 2 myndum við hendast af stað og reyna að ná braut. Klukkan 3 ca. aðfaranótt laugardags þegar voru þá 7 tímar í að keppni hæfist var bíllinn kominn í hjólin og keyrði. Þá átti eftir að lesta, keyra suður og smá smotteri eftir í bílnum líka. Skynsemin náði þá loks fótfestu í hausnum á okkur og tekin ákvörðun um að fara ekki. Þó að við höfum ekki náð keppninni er það lyginni líkast hversu litlu munaði, miðað við öll afturábak skrefin sem þurfti að stíga þessa daga.
Eins og segir í kvæði eftir smjörið mikla
"ekki er öll vitleysan eins!"
Takk!