RÍFB

RÍFB Rafíþróttadeild á vegum Íþróttafélags Bílddælinga

Þá er loksins komið að því, opið er fyrir forskráningu á fyrstu reglulegu æfingarnar í rafíþróttum fyrir aldurshópinn 13...
19/12/2024

Þá er loksins komið að því, opið er fyrir forskráningu á fyrstu reglulegu æfingarnar í rafíþróttum fyrir aldurshópinn 13-18 ára tímabilið 7. janúar til 29. apríl.

Stefnt er á að æfingar séu 2x í viku, þriðjudaga/fimmtudaga 16:30-18:00.

Þar sem sætin eru takmörkuð er forskráning nauðsynleg og ef fjöldi umsókna er mikil gæti það haft áhrif á fjölda æfinga sem boðið er upp á svo sem flestir geti tekið þátt. Skráningar verða staðfestar í þeirri röð sem þær berast.

Ef engin breyting er á fjölda æfinga eru æfingargjöldin 30þ fyrir tímabilið.

Hlekkur að skráningu: https://forms.office.com/r/ksex6EwJCP

Fyrir yngri aldurshópa verður stefnt á að halda helgarnámskeið í vetur, en það verður kynnt seinna þegar búið er að ákveða dagsetningar.

Ef þið hafið spurningar er hægt að senda mér skilaboð gegnum þessa Facebook-síðu og ég svara við tækifæri.

Einnig vil ég koma sérstökum þökkum til styrktaraðila okkar en án þeirra væri þetta ekki hægt:

Arnarlax ehf
Arctic Fish
ÍFB
Lionsklúbbur Patreksfjarðar
Fjarðaleið
Íslenska kalkþörungafélagið
Scale AQ Ísland
Nesskip

-Rúnar Örn Gíslason

Address

Hafnarbraut 10, Efri Hæð
Bíldudalur

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when RÍFB posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category