Biathlon Akureyri SKA

Biathlon Akureyri SKA Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Biathlon Akureyri SKA, Sports, Akureyri.

Góðar fréttir! Skráningu í skíðaskotfimi-mótið hefur verið framlengt til 5. feb kl. 23:59 🎉 Enn tími til að taka þátt í ...
04/02/2026

Góðar fréttir! Skráningu í skíðaskotfimi-mótið hefur verið framlengt til 5. feb kl. 23:59 🎉 Enn tími til að taka þátt í hraða, keppni og góðri stemningu – þetta verður virkilega gaman!

https://mot.ski.is/vidburdur/449

03/02/2026

🏆 Bikarmót í skíðaskotfimi – Hlíðarfjall
📅 7.–8. febrúar

Viltu prófa eitthvað nýtt og spennandi? 🔥
Keppt verður með laserbyssum í öllum flokkum – fullkomið fyrir byrjendur jafnt sem vana keppendur!

👧🧑 Aldur: 11 ára og eldri
💰 Gjald: 3.500 kr. á keppni

👉 Skráning til 4. febrúar:
https://mot.ski.is/vidburdur/449

⛷️🎯 Komdu, prófaðu og skemmtu þér!
Sjáumst í Hlíðarfjalli! 💙

02/02/2026

BIKARMÓT Í SKÍÐASKOTFIMI Á AKUREYRI!

Ertu tilbúin(n) í spennandi keppni í Hlíðarfjalli? Helgina 7.–8. febrúar verður haldið bikarmót í skíðaskotfimi þar sem skíðagleði og skotnákvæmni mætast.

Keppt er með laserbyssum í öllum flokkum – tilvalið tækifæri fyrir alla frá 11 ára aldri að spreyta sig!

🗓 DAGSKRÁ:

👉 Laugardagur 7. febrúar: Super Sprint

Skotæfing kl. 11:00

Ræsing kl. 12:30

👉 Sunnudagur 8. febrúar: Short Individual

Skotæfing kl. 10:00

Ræsing kl. 11:00

✅ Gagnlegar upplýsingar:

Aldursflokkar: 11 ára og eldri (allt upp í 36+).

Skráningargjald: 3.500 kr. á keppni.

Skráningarfrestur:

Til miðnættis 4. febrúar á SKI.IS.

https://mot.ski.is/vidburdur/449

Verðlaun: Veitt að móti loknu á sunnudag.

Sjáumst hress í Hlíðarfjalli

Akureyrarmót í skíðaskotfimi með frjálsri aðferð fer fram laugardaginn 31. janúar og er opið öllum.Óskað er eftir því að...
29/01/2026

Akureyrarmót í skíðaskotfimi með frjálsri aðferð fer fram laugardaginn 31. janúar og er opið öllum.

Óskað er eftir því að allir mæti tímanlega í æfingaskot kl. 10:00 til að prófa að skjóta með laserrifflum.
Keppni hefst kl. 11:00.

Ræsingar:
• 12 ára og yngri – kl. 11:00
• 13 ára og eldri – kl. 11:30

Keppnisform:
Super sprint
Staður: Hlíðarfjall

Vegalengdir:

• 12 ára og yngri (2014):
Super sprint 3 x 500 m
PP* – 75 m

• 13 ára og eldri (2013 og eldri):
Super sprint 5 x 1 km
PPSS** – 75 m

* Skotið liggjandi með búkka, með laserbyssum.
** Skotið liggjandi án hjálpartækja/búkka með laserbyssum. Fullorðnir skjóta tvisvar liggjandi og tvisvar standandi, með fyrirvara um aðstæður á keppnisdegi.

Hvetjum alla til að mæta og taka þátt í stuttu og skemmtilegu móti!
Skráning á staðnum kl.09.30

❄️🎯 Vetrar skíðaskotfimi hjá SKA 🎯❄️Langar þig að prófa skíðaskotfimi í vetur?Æfingar hjá SKA eru fyrir börn og unglinga...
07/01/2026

❄️🎯 Vetrar skíðaskotfimi hjá SKA 🎯❄️
Langar þig að prófa skíðaskotfimi í vetur?
Æfingar hjá SKA eru fyrir börn og unglinga á aldrinum 5–16 ára.
📍 Staðsetning: Hlíðarfjall – gönguskíðasvæðið
Fimmtudagar kl. 17:30–18:30
Laugardagar kl. 11:00–12:00
📌 Fyrsta æfing 2026 verður á morgun, 8. janúar.
👉 Enginn skíðabúnaður? Ekkert mál!
Hægt er að fá búnað lánað til að byrja með.
Allir velkomnir!

21/12/2025

🎿 Skíðaskotfimiæfingar
Í dag 21 desember!!!🎯
📍 Íþróttasalur Síðuskóla
🕓 Sunnudagar kl. 16:00–17:00

14/12/2025
22/11/2025

Skíðaskotfimi ætlar að heimsækja fjölskyldutímana í Íþróttahöllinni á morgun, 23. nóvember, frá kl. 09:30 til 11:30.

15/11/2025

FJÖLSKYLDUTÍMAR
Í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI

Fjölskyldutímar eru ætlaðir fyrir börn og ungmenni á grunnskólaaldri, systkini þeirra og forráðamenn.

Skíðaskotfimi ætlar að heimsækja fjölskyldutímana í Íþróttahöllinni á morgun, 16. nóvember, frá kl. 09:30 til 11:30.

Vertu með!!! 🎯⛷️💪

15/11/2025

📢 Breyting á æfingatíma í skíðaskotfimi 🎯

🏐 Vegna handboltamóts færist skíðaskotfimiæfingin sem átti að fara fram í Síðuskóla yfir í:

🏟️ Íþróttahöllina

📅 Sunnudagur 16. nóvember
🕤 Kl. 09:30–11:30

Address

Akureyri
600

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Biathlon Akureyri SKA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category