Allir með - Akureyri

Allir með - Akureyri Allir með er samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar. Verkefnið gengur út á að fjölga tækifærum fyrir börn með sérþarfir innan íþróttahreyfingarinnar

27/07/2026

Hæ hæ
Það verður ekki æfing miðvikudaginn 29.júlí, tökum Verslófrí. Hlökkum til að sjá ykkur í næstu viku 😊

21/07/2026

Góðan dag,

Allir krakkar sem mæta á Unglingalandsmótið á vegum Allir með þurfa ekki að greiða fyrir þátttöku. Til þess að skrá börn og ungmenni þarf að senda tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum til verkefnastjóra Allir með ([email protected])

Fullt nafn barns
Kennitala barns
Greinar sem barn vill skrá sig í – Dagskrá
Bolastærð barns
Fullt nafn foreldris/forráðamanns
Símanúmer foreldris/forráðamanns
Netfang foreldris/forráðamanns
Sveitarfélag og póstnúmer
Munuð þið nýta ykkur gistiaðstöðu sem boðið er upp á í skólanum
Ef já, hversu margir
Þið fáið staðfestingu í tölvupóst um skráningu og verður hún síðan færð inn í Abler.

Skráning er til og með sunnudeginum 26. júlí.

Aftur hvetjum við alla til að skrá sig á þessa stórskemmtilegu hátíð þar sem hægt er að prófa fullt af nýjum hlutum.

15/06/2026

Komið þið sæl

Æfing fellur niður á miðvikudaginn 17. júní, sjáumst hress aftur 24. júní.

29/05/2026
16/02/2026

Komið þið sæl
Minni á að æfingin næsta sunnudag fellur niður vegna blakmóts í salnum. Minni á æfingu á Ólafsfirði laugardaginn 21. feb, allir velkomnir að mæta. Sjáumst svo hress í Naustaskóla sunnudaginn 1.mars.

Hvet alla til að fylgjast líka með þessum Facebook hóphttps://www.facebook.com/share/p/177SGdC7hw/?mibextid=wwXIfr
02/02/2026

Hvet alla til að fylgjast líka með þessum Facebook hóp

https://www.facebook.com/share/p/177SGdC7hw/?mibextid=wwXIfr

Gleðilegan febrúar🎉

Það var heldur betur fjör á Dalvík og næsta Allir með æfing fer fram í Fjallabyggð laugardaginn 21. febrúar 💪⚽

Við hvetjum öll til að mæta – bæði þau sem búa á svæðinu og líka þau sem eru í nágrenninu.

Alltaf gaman að hittast, hreyfa sig saman og eiga góða stund 🤍

👉 Endilega deilið áfram!

20/01/2026

Komið þið sæl,

Fyrsta æfing ársins fór fram síðasta sunnudag og tókst mjög vel. Það var virkilega gaman að hitta krakkana aftur og frábært að sjá nokkra nýja mæta til leiks.

Við höfum ákveðið að seinka æfingunni og hefja hana kl. 11:30. Markmiðið er að koma í veg fyrir árekstra við hópinn sem er með æfingu á undan okkur. Þar er mikill fjöldi iðkenda og hefur því skapast talsverð örtröð á svæðinu.

Með þessari breytingu tryggjum við að þjálfararnir okkar hafi betri tíma til að undirbúa æfinguna og að krakkarnir mæti í rólegra og öruggara umhverfi. Við viljum að upplifunin þeirra sé góð og að þau finni fyrir bæði öryggi og ánægju þegar þau mæta á æfingu.

Hlökkum til að sjá ykkur næsta sunnudag.
Kveðja, þjálfarar

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest
28/11/2025

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest

Address

Naustaskóli
Akureyri

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Allir með - Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category