27/02/2023
Ak Extreme 2023 verður ekki í ár!
Óvæntar aðstæður og breyttar forsendur á lokastigum skipulagningar hafa orðið til þess að ekki verður unnt að halda Ak Extreme 2023 eins og áætlað var.
Okkur þykir það mjög miður, ekki síst vegna þeirra vina okkar, fjárfesta, listafólks og gesta sem voru farin að hlakka til að upplifa og njóta og láta hlutina gerast.
Við erum komin á fullt í skipulagningu og hugmyndasöfnun fyrir eitthvað æðislegt á næsta ári. Og hver veit nema það verði fyrr.
Þangað til: Ást og friður!
360° kveðja, eigendur og skipuleggjendur Ak Extreme.