31/08/2026
Við hefjum nýja önn í dag!🤸♀️🥳
Í tilefni dagsins erum við einstaklega ánægð að geta tilkynnt að við höfum skrifað undir nýjan tveggja ára samstarfssamning við Íslandsbanka 💛❤️
Íslandsbanki er nú einn af okkar stærstu og öflugustu styrktaraðilum og við erum ótrúlega þakklát fyrir þann stuðning sem bankinn veitir félaginu okkar og starfseminni.
Okkar besta fólk úr bankanum, Pálmi og Sigþóra, mættu og skrifuðu undir samninginn fyrir hönd Íslandsbanka. Það er sannarlega ánægjulegt að hefja önnina með þessum skemmtilega áfanga!
Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs næstu tvö árin og þökkum Íslandsbanka kærlega fyrir traustið og stuðninginn💛
Við erum svo sannarlega tilbúin í nýja önn – áfram ÍA 🤸♀️💛
Íslandsbanki